top of page
Skilmálar

Réttur til afbókunar

Vinsamlegast legðu inn beiðni til okkar ef þú vilt breyta bókun þinni og við gerum okkar allra besta til að uppfylla óskir þínar. Bíleyri ehf. áskilja sér rétt á að breyta bókun, lýsingu þjónustu liða og tímabókunar án fyrirvara ef nauðsynlegt þykir.

Trúnaður (Öryggisskilmálar) 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing 

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

 

 

Kökur 

Vafrakökur

Vafrakökur (e. cookies) eru smáar textaskrár sem vefsíður koma fyrir á tölvu þinni, síma eða snjalltæki þegar þú heimsækir þær. Vafrakökur eru almennt notaðar til að bæta viðmót og notendaupplifun vefsíðunnar. Einnig til þess að vefsíðan muni mikilvægar upplýsingar frá fyrri heimsóknum þínum. Vafrakökur eru öruggar, þær innihalda ekki kóða og geta ekki verið notaðar til komast inn í tölvuna þína.

 

Af hverju notar Bíleyri ehf. vafrakökur?

Við notum vafrakökur til mælinga á heimsóknum á heimasíðu okkar. Umferð á vefinn eru mæld með Google Analytics. Það þýðir að skráður er tími og dagsetning heimsókna á vefinn, IP tölur þeirra sem heimsækja hann og frá hvaða vefsíðu heimsóknir koma, tegund vafra og stýrikerfis og hvaða leitarorð notendur nota til að komast á vefinn sem og til að finna efni innan hans. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi eins og til dæmis að muna hvað notandi hefur valið í bókunarvél á meðan hann er tengdur vefsvæðinu, þær kunna einnig að vera notaðar í öryggisskyni. Lotukökur eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda á vefsvæði. Engar tilraunir eru gerðar til að tengja heimsókn við persónugreinanlegar upplýsingar.

Hvernig er hægt að eyða vafrakökum?

Allir vafrar bjóða upp á takmörkun á notkun á vafrakökum, eins er mögulegt að slökkva á þeim í stillingum vafranns. Ólíkt er eftir vöfrum hvernig þetta er gert en leiðbeiningar má finna í hjálparvalmöguleika í vafranum sem þú notar. Einnig er hægt að eyða þeim vafrakökum sem þegar eru vistaðar hjá þér. Skrefin við að eyða vafrakökum eru ólík eftir vöfrum en leiðbeiningar um slíkt má finna í hjálparvalmöguleika í vafranum sem þú notar.

bottom of page